Spínat ER gott fyrir vöðvana

Þá er það sannað: Spínat styrkir vöðvana. Mynd: Shutterstock.


  • Prenta
  • Senda frétt

Ný rannsókn sem unnin var í Svíþjóð sannar að teiknimyndahetjan Stjáni blái eða Popeye, eins og hann heitir á frummálinu, hefur rétt fyrir sér. Spínat gerir menn sterka.

Vísindamenn við Karólínsku stofnunina í Stokkhólmi segja að nítrat, sem mikið er af í spínati og nokkrum öðrum grænmetistegundum, hjálpi til við að byggja upp vöðvana. Við rannsóknina var nítrat sett í drykkjarvatn músa í eina viku. Eftir það var vöðvamassi þeirra skoðaður og borinn saman við massann í músum sem ekkert nítrat fengu. Vöðvar þeirra fyrrnefndu voru mun stæltari en hinna. Nítratið sem mýsnar fengu samsvaraði því að mannfólkið borðaði 200-250 grömm af spínati á dag. Niðurstöður þessarar sænsku rannsóknar verða birtar í tímariti lífeðlisfræðinga, Journal of Physiology.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku