Tími stórvirkjana liðinn

Róttækar athugasemdir við Rammaáætlun
Þrettán náttúruverndarsamtök hafa sent alþingi athugasemdir um þingsályktunartillögu um vernd og orkunýtingu landssvæða, sem liggur fyrir alþingi og gengur venjulega undir nafninu Rammaáætlun. Í sem skemmstu máli leggja samtökin til að ýmis svæði sem samkvæmt áætluninni er sett í svokallaðan biðflokk verði færð í verndarflokk vegna verndargildis síns. Stofnaður verði þjóðgarður sem taki til miðhálendis Íslands svo og eldfjallaþjóðgerður á Reykjanesi. Jariðhitasvæði Þingeyjarsýslu verði sett í verndarflokk, sem og Héraðsvötn og Jökulsá eystri og vestri í Skagafirði, Hengilssvæðið, Neðri hluti Þjórsár, Skaftárhreppur, og Hvalá í Ófeigsfirði. Rannveig Magnúsdóttir líffræðingur og doktorsnemi í líffræði ritstýrði álitsgerðinni sem send var alþingi og Spegillinn ræddi við hana.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







