Sorphirðugjöld há í Norðurþingi

Sorphirðugjaldið á Húsavík er nú 45.839
Sorphirðugjald fyrir heimilissorp í Norðurþingi hækkaði um átján prósent um áramót.
Eins og greint var frá í fréttum í gær hækkar sorphirðugjald í flestum fjölmennustu sveitarfélögum landsins á þessu ári. Af fimmtán stærstu sveitarfélögum landsins er sorphirðugjaldið hæst á Ísafirði, um 43 þúsund krónur á tunnu sem er þrefalt meira en á Seltjarnarnesi. Sorphirðugjaldið er hins vegar enn hærra í Norðurþingi, 45.839 krónur.
Guðbjartur Ellert Jónsson, fjármálastjóri Norðurþings, segir að vissulega sé þetta hátt. Raunin sé sú að hirðing og eyðing sorps í sveitarfélaginu standi ekki undir sér annars. Öllu sorpi í Norðurþingi er brennt á Húsavík og því þannig eytt varanlega en kostnaður við urðun getur í sumum tilfellum verið minni.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku

Afar mikill munur á sorphirðugjaldi





