Syngja saman til að róa taugar

Eins og gefur að skilja eru taugarnar þandar baksviðs í Hörpu í dag, en stóra stundin rennur upp fyrir keppendur í Söngvakeppni Sjónvarpsins eftir örfáa klukkutíma.

Hér eru margir tónlistarmenn samankomnir og hvað er þá betra en að róa taugarnar með svolitlum samsöng? Hugarró-hópurinn deilir búningsherbergi með Bláum Ópal og þeir taka hér lagið.

Meðfylgjandi myndband var tekið upp rétt fyrir rennsli þar sem dómnefnd greiðir atkvæði.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Extra, Söngvakeppni

Tilkynna um bilaða upptöku