Röðin í úrslitum ljós

Guðrún Árný Karlsdóttir og Heiða Ólafsdóttir verða fyrstar á svið í úrslitum Söngvakeppni Sjónvarpsins sem fram fer í Eldborgarsal Hörpu á laugardagskvöldið. Þær flytja lag Gretu Salóme Stefánsdóttur, Aldrei sleppir mér.
Greta Salóme flutti lagið með Guðrúnu Árnýju og Heiðu í undanúrslitunum, en sem kunnugt er á Greta tvö lög í úrslitakeppninni í ár og hún ákvað að flytja aðeins annað þeirra.
Magni er annar á svið með lagið Hugarró eftir Svein Rúnar Sigurðsson, sem einnig á tvö lög í úrslitum. Rósa Birgitta flytur lag hans Stund með þér og verður þriðja á svið, beint á hæla Magna.
Fjórða lagið á svið er Hey eftir Magnús Hávarðarson í flutningi Simba og Hrútspungana. Þar á eftir flytur Regína Ósk lagið Hjartað brennur, sem er eftir Maríu Björk Sverrisdóttur, Marcus Frenell, Fredrik Randquist og Önnu Andersson.
Sjöttu á svið er söngsveitin Blár Ópal sem flytur lag þeirra Ingólfs Þórarinssonar og Axels Árnasonar, Stattu upp.
Að lokum stígur Greta Salóme á svið og flytur lag sitt Mundu eftir mér ásamt Jónsa.
Lögin og kosninganúmer þeirra:
1. Aldrei sleppir mér - lag og texti: Greta Salóme Stefánsdóttir. Flytjendur Guðrún Árný Karlsdóttir og Heiða Ólafsdóttir. Kosninganúmer: 900-9901
2. Hugarró - lag: Sveinn Rúnar Sigurðsson, texti: Þórunn Erna Clausen. Flytjandi Magni Ásgeirsson. Kosninganúmer: 900-9902
3. Stund með þér - lag: Sveinn Rúnar Sigurðsson, texti: Þórunn Erna Clausen. Flytjandi Rósa Birgitta Ísfeld. Kosninganúmer: 900-9903
4. Hey - lag og texti: Magnús Hávarðarson. Flytjandi: Simbi og Hrútspungarnir. Kosninganúmer: 900-9904
5. Hjartað brennur - lag: María Björk Sverrisdóttir, Marcus Frenell, Fredrik Randquist og Anna Andersson, texti: Kristján Hreinsson. Flytjandi: Regína Ósk. Kosninganúmer: 900-9905
6. Stattu upp - lag og texti: Axel Árnason og Ingólfur Þórarinsson. Flytjandi: Blár Ópal. Kosninganúmer: 900-9906
7. Mundu eftir mér - lag og texti: Greta Salóme Stefánsdóttir. Flytjendur: Greta Salóme Stefánsdóttir og Jón Jósep Snæbjörnsson. Kosninganúmer: 900-9907
Úrslitakeppnin fer fram í Eldborgarsal Hörpu og alls verða um eitt þúsund áhorfendur viðstaddir, sem er metfjöldi. Miðar á keppnina seldust upp á fimm mínútum þegar þeir fóru í sölu. Keppnin verður einnig í beinni útsendingu á RÚV og hefst kl. 20.30.
Kynnar eru Brynja Þorgeirsdóttir og Páll Óskar Hjálmtýsson.
Skemmtiatriðin verða ekki af verri endanum en Páll Óskar lætur sér kynnastarfið ekki nægja og tekur lagið. Hera Björk, fyrrum Eurovision fari, gerir það einnig.
Það lag sem stendur uppi sem sigurvegari verður framlag Íslands til Eurovision keppninnar í Aserbaídsjan í maí. Íslenska framlagið keppir í fyrri hluta fyrri undanriðils þann 22. maí. Aðalkeppnin fer fram 26. maí.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
SöngvakeppniTilkynna um bilaða upptöku







