Hugarró - nr. 900-9902

Smelltu til að horfa á lifandi flutning

Lag: Sveinn Rúnar Sigurðsson Texti: Þórunn Erna Clausen

Texti:

 

Ég hef fundið frið

en staldra stundum við

og hugs’um þig.

Þú ert allt sem var,

get ekki verið þar.

Hvað gerist þá?

 

Það skellur á mér flóð.

Og sársaukinn mig grefur í snjó.

Nístir hjart’og blóð.

Ég vildi að þú gætir veitt hugarró.

 

Þú sem aldrei brást,

gafst alla heimsins ást.

Ég sakna þín.

Gróa þessi sár

ef þorna öll mín tár?

Ég treyst’á þig.

 

Ef skellur á mér flóð.

Og sársaukinn mig grefur í snjó.

Nístir hjart’og blóð

.Ég vildi að þú gætir veitt hugarró.

 

Heyri raddir.

Mér finnst ég vera kalinn.

Ég vil lifa.

Án þess að vera falinn.

Þú hvíslar„þitt er valið“.

Ég get andað.

 

Skellur á mér flóð.

Og sársaukinn mig grefur í snjó.

Nístir hjart’og blóð.

Ég vildi að þú gætir veitt hugarró.

 

Það skellur á mér flóð.

Og sársaukinn mig grefur í snjó.

Nístir hjart’og blóð.

Ég vildi að þú gætir veitt hugarró.

 

Ég hef fundið frið

en staldra stundum við

og hugsa um þig.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka

Lögin eru einungis til hlustunar á vefnum. Opinber flutningur er óheimill.