Gefur breytingar í skyn
Fyrst birt: 28.01.2012 22:14, Síðast uppfært: 31.01.2012 14:44

Greta Salóme, höfundur Aldrei sleppir mér, gaf sterklega í skyn að einhverjar breytingar verði á lögum hennar í úrslitum Söngvakeppninnar þegar ljóst varð að hún ætti þar tvö lög.
Greta sagði að þó hún gæti sennilega sungið tvö lög í úrslitakeppninni væri ekki víst að hún gerði það. Hvort þetta þýðir að hún dragi sig út úr öðru hvoru atriðinu verður að koma í ljós. Lag Gretu, Mundu eftir mér, sem hún flutti ásamt Jónsa komst áfram í fyrsta undanúrslitaþætti Söngvakeppninnar.
Annars voru þær allar í skýjunum með að komast áfram og með fallegu hvítu kjólana sína.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







