FÁSES er fyrir alla júrónörda
Fyrst birt: 09.02.2012 13:20, Síðast uppfært: 10.02.2012 13:56

Ert þú sá eini í vinahópnum sem hefur gríðarlegan áhuga á Eurovision og Söngvakeppninni? Þá gæti FÁSES verið eitthvað fyrir þig!
FÁSES er nýstofnað félag áhugamanna um Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva og Söngvakeppni Sjónvarpsins. Félagsmenn eru um 60 talsins og fer ört fjölgandi.
Alma Tryggvadóttir og Eyrún Ellý Valsdóttir sögðu okkur nánar frá starfsemi félagsins, hvernig það kom til og hvað þeim finnst um Söngvakeppnina í ár.
Heimasíða FÁSES er á Facebook.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







