Ein besta stund lífsins

Greta Salóme og Jónsi voru í skýjunum þegar úrslit lágu fyrir í Söngvakeppni Sjónvarpsins í kvöld. Lag Gretu, Mundu eftir mér, verður fulltrúi Íslands í Eurovision í Aserbaídsjan í maí.

Ekkert hefur verið ákveðið hvort lagið verður flutt á ensku eða íslensku og Greta Salóme segist aldrei hafa hugsað svo langt. Nú sé spurning hvort hún fái frí hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands til að taka þátt í Eurovision og sennilega þarf Jónsi að fresta vorprófum í sálfræði við HR.

Meðfylgjandi er viðtal við Gretu Salóme og Jónsa.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Extra, Söngvakeppni

Tilkynna um bilaða upptöku