Aldrei sleppir mér - nr. 900-9901

Smelltu til að horfa á lifandi flutning

Lag og texti: Greta Salóme Stefánsdóttir

Texti:

 

Ég horfi upp í himininn

skrifa í skýin, leyndarmál.

Hlusta á hjartsláttinn

hljóma í takt við þinn.

Ég syng af lífi og sál.

Vertu nálægur í nótt, þegar myrkrið kemur fljótt.

Þú segir að sólin, hún skíni á ný.

En ekkert ég þarf þó að óttast, nei því að þú, þú

verður hér.

Ó, þó vindarnir blási og vonin sé veik,

saman þá stöndum við sterk og ég veit

að sama hvert ég fer,

þú aldrei sleppir mér.

 

Heyrirðu hrópin mín,

hlustarðu á sönginn minn?

Ég syng fyrir þig.

Vertu hjá mér þegar kvölda fer,

þess aðeins ég bið.

Vertu nálægur í nótt, þegar myrkrið kemur fljótt.

 

Þú segir að sólin, hún skíni á ný.

En ekkert ég þarf þó að óttast,nei því að þú,

þú verður hér.

Ó, þó vindarnir blási og vonin sé veik,

saman þá stöndum við sterk og ég veit

að sama hvert ég fer,

þú aldrei sleppir mér.

 

Þú segir að sólin, hún skíni á ný ...

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka

Lögin eru einungis til hlustunar á vefnum. Opinber flutningur er óheimill.