Song til Barcelona

Alex Song í baráttunni gegn Manchester City á síðustu leiktíð


  • Prenta
  • Senda frétt

Spænska stórliðið Barcelona hefur gengið frá kaupum á kamerúnska miðvallarleikmanninum Alex Song frá enska úrvalsdeildarliðinu Arsenal.

Song, sem er 24 ára, skrifaði undir fimm ára samning við Barcelona í dag eftir að hafa staðist læknisskoðun.  Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, ákvað að selja Song þegar hann reyndist tregur til að skrifa undir nýjan samning við Arsenal.  Wenger segir Song að auki hafa mætt illa á æfingar og verið latur að undanförnu og því hafi verið ákveðið að selja kappann.  Talið er að kaupverðið sé um 15 milljónir punda, eða hátt í þrjá milljarða króna.  Song skoraði 10 mörk fyrir Arsenal í 204 leikjum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku