Sölvi Geir, Ragnar og Rúrik unnu

Rúrik Gíslason og félagar í OB unnu fyrsta leik sinn á tímabilinu


  • Prenta
  • Senda frétt

Íslendingaliðin FC Kaupmannahöfn og OB unnu bæði leiki sína í dag í fyrstu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.

Sölvi Geir Ottesen og Ragnar Sigurðsson léku báðir allan leikinn fyrir Kaupmannahöfn sem sigraði Midtjylland 4-2 á heimavelli og Rúrik Gíslason var sömuleiðis allan tímann í liði OB sem vann 1-0 útisigur á Bröndby.

Danska deildin

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku