Snjórinn gerir Ítölum lífið leitt
Fyrst birt: 11.02.2012 17:14, Síðast uppfært: 11.02.2012 17:59

Svona var umhorfs við hringleikahúsið í Róm í dag.
Flugsamgöngur hafa raskast og vegir lokast víða á Ítalíu í dag vegna mikillar snjókomu. Vinsælir ferðamannastaðir á borð við hringleikahúsið í Róm eru lokaðir og lestarferðir liggja víða niðri.
Sumstaðar hafa íbúar þurft að yfirgefa hús sín þar sem hætta er talin á að þök þeirra séu að sligast undan snjóþyngslum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Ennþá fimbulkuldi í Austur-Evrópu
Enn víða neyðarástand í Evrópu






