Snjóathuganir með fingrum og hnefa

Oddur og Örn rannsaka stærð snjókorna.

Það hefur mikið mætt á snjóathugunarmönnum síðustu daga. Um miðjan janúar fékk Landinn að fara með þeim Erni Ingólfssyni og Oddi Péturssyni að taka snjógryfju á Kistufelli í Skutulsfirði. Oddur er reyndasti sjóathugunarmaður landsins, reyndar kominn á eftirlaun enda 81 árs.

En Oddur er aðstoðarmaður eftirmanna sinna og til taks þegar á þarf að halda.

Gryfjan er tekin til að hægt sé að meta hversu örugg snjóalögin eru. Til þess þarf að hörkumæla lögin, skoða lagskiptingu þeirra, hita og eðlisþyngd. Hörkumælingin er gerð með hnefa, fingrum, hníf, penna og tommustokk. Síðan er snjósögin dregin fram, og lamið á snjóalög með skóflublaði.

Hér má fræðast meira um starf snjóathugunarmanna og snjóflóðarannsóknir

Vertu vinur Landans á Facebook

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku