Skrautlegar kindur
Fyrst birt: 23.09.2012 19:12, Síðast uppfært: 23.09.2012 19:12

Um 160 kindur á bænum Grímsstöðum í Mývatnssveit hafa vakið mikla athygli fyrir undarlegt útlit. Ullin á þeim var nýlega spreyjuð í sex hressilegum litum, en ástæða litagleðinnar er sú að kindurnar voru lánaðar til töku auglýsingamyndar fyrir erlent fyrirtæki.
Þar sem ekki er hægt að þvo litinn úr ullinni verða kindurnar svona glaðlegar á litinn þar til þær verða rúnar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














