Skoraði og lést

Mynd: pitea-tidningen.se
Mikil sorg ríkir í herbúðum sænska knattspyrnuliðsins Piteå IF eftir að skærasta stjarna liðsins hné niður og lést í miðjum leik á sunnudag.
Victor Brännström skoraði mark á 4. mínútu og náði forystunni fyrir Piteå gegn Umedalen í fjórðu deildinni í Svíþjóð. Skömmu síðar hné hann niður og báru lífgunartilraunir ekki árangur. Leikurinn var umsvifalaust flautaður af og Brännström fluttur á spítala þar sem hann var úrskurðaður látinn.
Brännström féll í yfirlið í leik fyrr á þessu ári og tók sér tímabundið frí frá fótbolta meðan hann gekkst undir rannsóknir. Læknar komust að þeirri niðurstöðu að ekkert amaði að Brännström og sneri hann þá aftur á knattspyrnuvöllinn.
Brännström var 29 ára og lætur eftir sig konu og tvö börn.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














