Skólasameiningu mótmælt á fundi

Mynd: Björn Malmquist

Á annað hundrað foreldra barna í Hamraskóla í Grafarvogi komu saman í gærkvöld til að mótmæla áformum um sameiningu unglingadeilda í þremur grunnskólum í borgarhlutanum; stefnt er að því að flytja unglingana í Hamraskóla og Húsaskóla yfir í Foldaskóla í Grafarvogi.

Við þetta eru forelda barna í Hamraskóla hreint ekki sáttir. Marta Kristín Hreiðarsdóttir er foreldri tveggja barna í Hamraskóla. Hún segir að helst sé við það að athuga að þetta sé ekki nægilega undirbúið og reyndar séu flestir foreldrar á móti sameiningu. Aðallega sé verið að gagnrýna verklagið, hvernig allt sé unnið. Síðan fáist engin svör við þeim spurningum sem hafi óhjákvæmilega vaknað hjá foreldrum.

Á fundinum í gærkvöld kom fram að Elín Hjálmsdóttir, formaður foreldrafélags skólans sem sat í stýrihóp borgaryfirvalda um sameininguna, hefði sagt sig úr hópum. Elín segir að þessi hópur hafi tekið til starfa í byrjun september. Hún hafi farið á fund með nokkrar spurningar. Þeim hafi ekki verið svarað og vísað frá umræðunni. Þetta hafi ekki þótt vera rétti vettvangurinn til að ræða þessar spurningar.

Fulltrúar meirihlutans í borginni mættu ekki á fundinn í gær. Ekki hefur náðst í Oddnýju Sturludóttur, formann skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar vegna málsins.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka