Prenta frétt

Senda frétt

Skólameistari við nýjan skóla

Menntamálaráðherra hefur skipað Láru Stefánsdóttur framkvæmdastjóra í starf skólameistara við Framhaldsskólann við utanverðan Eyjafjörð. Skólinn tók til starfa í haust en hefur í vetur starfað undir hatti Verkmenntaskólans á Akureyri. Sjö umsóknir voru um stöðuna sem var auglýst í nóvember og miðað var við að skólameistari yrði skipaður frá og með 1. janúar. Lára sagði í samtali við fréttastofu að hún gerði ráð fyrir að hefja störf fljótlega. Lára er með meistarapróf í kennslufræðum og ljósmyndun.

 
        

frettir@ruv.is


Senda á Facebook

29. júlí 2010

Streymiþjónusta