Sjálfboðaliðar mála kirkju
Fyrst birt: 26.06.2012 13:37, Síðast uppfært: 26.06.2012 13:37

Ólafsfjarðarkirkja Mynd:kirkjan.is
Kirkjan á Ólafsfirði fær andlitslyftingu í vikunni. Bæjarbúar hafa verið beðnir um að koma og mála kirkjuna, en velunnarar hafa gefið málningu til verksins.
Að sögn Jónu Vilhelmínu Héðinsdóttur, formanns sóknarnefndar Ólafsfjarðarkirkju, er ekki til fjármagn til viðhalds á kirkjunni og því var sú leið farin að kalla eftir sjálfboðaliðum til verksins. Að hennar sögn er þetta ekki í fyrsta sinn sem leitað er til bæjarbúa og þeir beðnir um að leggja hönd á plóg vegna verkefna á Ólafsfirði, en stutt er síðan rótarýmenn máluðu skíðastökkpall bæjarins.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












