Sjaldgæft fiðrildi á Íslandi

Landvörður norðan Vatnajökuls fann stórt og dökkt fiðrildi síðasta sumar, og fyrst var talið að það væri aðmírálsfiðrildi. Svo reyndist ekki vera, heldur var þetta fiðrildi af tegundinni Maniola jurtina, sem aldrei hefur sést hér áður.
Frá þessu er sagt á vef Náttúrustofu Norðausturlands. Þessi fiðrildi eru algeng í Evrópu sunnan við sextugasta og aðra breiddargráðu - frá úralfjöllum í austri og suður til nyrsta hluta Afríku. Grunnlitur þeirra er brúnn en ofafn á fremri vængjum eru gul svæði með svörtum augum. Vænghaf þeirra getur orðið allt að sex sentimetrar - það er þannig mun stærra en þær tegundir sem lifa hér á landi. Maniola jurtina er ekki þekkt fyrir flökkueðli og það má telja afar ólíklegt að fiðrildið sem hér fannst hafi flogið hingað. Mun líklegra er talið að það hafi komið með erlendum ferðamönnum - enda fannst það - dautt - á bílastæðinu við Öskju. Stefanía Eir Vignisdóttir landvörður, flutti þennan óvenjulega ferðalang til byggða - og það verður varðveitt í skordýrasafni Náttúrufræðistofnunar Íslands um ókomna tíð
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
InnlentTilkynna um bilaða upptöku








