Jólaglögg að hætti Marentzu Poulsen var til umræðu hjá Sirrý á sunnudagsmorgni annan sunnudag aðventu. Marentza veitingakona kom með tvær uppskriftir sem hægt er að hafa áfengar eða óáfengar eftir smekk. Þær eru misauðveldar að búa til.
Uppskriftin að jólaglöggi frá Marentzu Poulsen:
1 dl vodka. 1 msk kardimommur heilar. 2 kanilstangir. 2 cm engiferrót skorin í bita. 10 negulnaglar. 1-2 dl sykur. 1 flaska rauðvín. 3 appelsínusneiðar.
Öllu kryddi nema sykri blandað saman við vodka og látið standa yfir nótt við stofuhita. Sykrinum blandað saman við vodkablönduna og hitað að suðu. Má ekki sjóða. Þá er kryddið sigtað frá og rauðvíni blandað saman við. Gott að setja rúsínur og möndlur út í glöggið. Borið fram með piparkökum og góðu skapi
Einfaldari uppskrift að jólaglöggi frá Marentzu Poulsen:
1 flaska jólaglögg (óáfengt og fæst í Ikea). Sett í pott ásamt 2 stjörnuanísum, tveimur kanelstöngum, möndlum og rúsínum. Hitað aðeins að suðu. 1 flaska rauðvín (má vera óáfengt) sett samanvið. Má bragðbæta með líkjör eða öðru víni
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is