Trúa Íslendingar á kraftaverk?

Opin lína fjallaði um dulræn málefni. Trúa flestir Íslendingar á kraftaverkalækningar, miðla...? Geta kraftaverk átt sér stað á kassanum í Bónus? Ragna Sigurðardóttir rithöfundur ræddi um dulræn málefni og bók sína ,,Bónusstelpan".

Arnheiður Hjörlefis á Bjarteyjarsandi tók veðrið og ræddi  um daginn og veginn og viðburði í Hvalfirði.

Marentza Poulsen ræðir næstu sunnudagsmorgna kl. hálf 10 um stresslausa og huggulega aðventu. Hún  gefur ráð og hugmyndir um jólaundirbúning og huggulegheit.

Hjörleifur Hjartarson í Svarfaðardal flutti  pistil sinn: Einleikur á nostalgíu. Hann saknar þess tíma þegar þjóðin var felmtri slegin yfir ofbeldisverkum og morðum sem gerðust á 25 ára fresti. Morð var framið í Færeyjum nýlega og þjóðin er í sjokki. Við erum komin of langt frá Færeyjum segir Hjörleifur.

Heimamarkaður að dönskum sið var haldinn í Reykjavík um helgina. Sólveig Hildur Björnsdóttir og Þórunn Rakel Gylfadóttir endurnýta hluti og samnýta karlmann. Getur það verið? Þær sögðu frá síðunni sinni á Fésbók sem finna má undir nafninu: Lyngey.

Tónlist m.a. af nýjum diskum Helgja Júliusar Hauslauf og Helga Björns þar sem hann söng íslenskar dægurperlur í Hörpunni. Fjallabræður og tónleikar þeirra í Fríkirkjunni komu nokkuð við sögu.

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku