Þjóðarfugl, kynjafræði, opin lína

Sunnudagsmorguninn hófst á óskalögum og er íslensk tónlist í hávegum höfð hjá hlustendum. Eftir klukkan 9 var heppnum hlustendum boðið á leiksýninguna Gulleyjan á Akureyri. Nýtt lag leikið úr sýningunni.

Konur á þremur stöðum á landinu voru leiddar saman en þær Geirlaug Jóhannsdóttir verkefnisstjóri símenntunar, Anna Ólöf í Borgarfirði og Sigríður Edda Wiium á Vopanfirði vita allt um Mátt kvenna. Þær ræddu um fjarnám við Háskólann á Bifröst sem hefur orðið mörgum stökkpallur til frekara háskólanáms eða stofun fyrirtækis. Þær ræddu fjarnám og kosti símenntunar.

Hjörleifur Hjartarson pistlahöfundur í Svarfaðardal vill að við fáum okkur þjóðarfugl, eins og þjóðarblóm. Hann ræddi um Hrafninn.

Félag ungra jafnéttissinna va stofnað fyrir viku. Þátttkendur eru af báðum Í kynjum og á aldrinum 14-15 ára. Bryndís Torfadóttir og Viktor Ingi Lorange ræddu um markmið félagsins og viðhorf ungs fólks til jafnréttis. Félagið hefur fesbókarsíðuna Félag ungra jafnréttissinna og er öllum opið. Næsti fundur er á miðvikudagskvöld.

Hanna Björg Vilhálmsdóttir kennari við Borgarholtsskóla ræddi um kynjafræðina sem er vinsæll áfangi meðal nemenda af báðum kynjum. Nú talaði Hanna um staðalmyndir kynjanna eins og karlar og konur birtast í fjölmiðlum og kvikmyndum.

Orðið var laust í Opinni línu fra kl. 11-12. Þjóðarfugl bar á góma og sitt sýnist hverjum um ágæti Krumma.

Netfang þáttarins er sirry@ruv.is

 

 

 

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku