Sparnaðarráð í Opinni línu

Margir sjá fram á veruleg útgjöld um mánaðarmótin þegar komið er að því að borga kreditkortareikninga eftir jólin. Í Opinni línu kl. 11 verður rætt um sparnaðarráð. Hvað virkar til að halda heimilisútgjöldum niðri? S: 568-6090. Þuríður Hjartardóttir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna ræðir málin.

Rannveig Grétarsdóttir framkvæmdastjóri hvalaskoðunarfyrirtækisins Eldingar fékk verðlaun FKA 2012. Hún kemur í morgunkaffi kl. hálf 10 og ræðir um tilurð fyrirtækisins og hvernig gengur. Hjörleifur Hjartarson pistlahöfundur þáttarins í Svarfaðardal flytur pistil um Þorrablót. Pistlar hans eru fastur liður eftir 10 fréttir á sunnudögum. Sunnlenskar konur standa fyrir fundaröð um sparnað, hagsæld og hamingju. Um það verur rætt upp úr kl. 9. Borgen heitir ein vinsælasta danska sjónvarpsþáttaröðin sem farið hefur sigurför um Norðurlönd. Erla Kettler segir frá þáttaröðinni og hve vel hún passar við raunveruleika danskra stjórnmála. Fyrsti þátturinn verður á dagskrá RÚV um kvöldið. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku