Salt, Siggi Sigurjóns, sjóræningjar

Salt er ekki sama og salt. Í Ísafjarðardjúpi er framleitt íslenskt salt til matargerðar. Hvernig gengur og hvernig eru íslensku salti tekið? Pistlahöfundurinn Hjörlefur Hjartarson segir flámælgi lifa góðu lífi. Ungverskar konur sem vinna saman að heilsumálum Íslendinga koma í morgunkaffi.

Alfanámskeið - hvað er það, eitthvað fyrir þig? Vilborg Scrhram segir frá þessum vinsælu námskeiðum. Siggi Sigurjóns leikari og leikstjóri kemur í kaffispjall og ræðir um Gulleyjuna, sjóræningjaæði og ferilinn. Og í Opinni linu verður haldið áfram með umræðu um kynjafræði, klámvæðingu og það hvernig mynd er dregin upp af konum og körlum í sjónvarpi og kvikmyndum. Hanna Björg Vilhjálmsdóttir kennari í kynjafræði við Borgarholtsskóla situr fyrir svörum hjá Sirrý í hljóðstofu. Síminn er: 568-6090. Vertu með!

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku