Jólakökubakstur og rautt nef

Veðrið vítt og breitt. Ómar Skarhéðinsson vinnur á snjótroðara í Bláfjöllum og tók veðrið. Salka Valka á fjölunum í Lundareykjadal. Lára Lárusdóttir 19 ára ræddi um leikritið og tók veðrið. Karlakórinn Ernir í jólaskapi og Sigmundur Fríðar Þórðarson ræddi sönglífið og tók veðrið á Þingeyri.
Marentza Poulsen veitingakona ræddi um aðventuna og jólakortin: Eru þau kvöð eða gleði? Og hún gaf uppskriftir að jólaglögg.
Hjörleifur Hjartarson í Svarfaðardal flutti vikulegan pistil: Einleikur á nostalgíu er yfirskriftin.
10 flautuleikarar í Flautukórnum KóSí komu og léku jólalög í beinni útsendingu á þverflautur og bassaflautu. Þær eru að safna fyrir námsferð til ítalíu ásamt stjórnanda hópsins Pamelu De Sensi.
Halldóra Geirharðsdóttir leikkona ræddi um húmor og hjálparstarf í tilefni af degi rauða nefsins á vegum Unichef. Hún mætti með trúðnum Barböru.
Jói Fel sat fyrir svörum í Opinni línu milli kl. 11 og 12 og gaf ráð varðandi jólabaksturinn.
Leikin lög af nýjum diskum, m.a. með Cortes feðgum, Frostrósum og Melchior og endurútgefnum diski með Hauki Morthens.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
Sirrý á sunnudagsmorgniTilkynna um bilaða upptöku








