Jólahreingerningin í Opinni línu

Prestarnir og hjónin Jóna Hrönn Bolladóttir og Bjarni Karlsson koma í morgunkaffi kl. 9 og ræða lífið og tilveruna. Sérfræðingar í huggulegheitum koma í heimsókn, þær Marentza Poulsen og Gurra Hauks í Huggestuen í Danmörku. Hjörleifur Hjartarson pistlahöfundur í Svarfaðardal verður á sínum stað.
Grýla verður meðal gesta í þættinum og ræðir um hegðun fólks og
segir frá lífi sínu nú á aðventu. Tinna Þóru-Þorvaldsdóttir ræðir nýju heklbókina sína og gefur heppnum hlustendum eintök. Þetta er fyrsta heklbókin í 63 ár. Og í Opinni línu verður rætt um mál málanna: Jólahreingerninguna. Margrét Sigfúsdóttir skólastjóri Hússtjórnarskólans situr fyrir svörum og gefur góð ráð varðandi þrif fyrir jólin. S: 568-6090.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
Sirrý á sunnudagsmorgniTilkynna um bilaða upptöku








