Jóladagsmorgun á Rás 2

Jólalög, jólasögur og jólavísur fyrir þá sem vilja hafa það notalegt á jóladagsmorgun. Bergþór Pálsson og Albert Eiríksson koma í heimsókn og ræða vinamót, mannasiði og samkvæmisleiki. Þeir kunna flestum betur að taka á móti fólki og gera boðið skemmtilegt þannig að allir fá að njóta sín.

Jólatónlist frá ýmsum tímum verður í aðalhlutverki á jóladagsmorgun. En einnig verður endurfluttur pistill Hjörleifs Hjartarsonar í Svarfaðardal þar sem sögð er sagan af afdrifaríkum afleiðinum þess að jólasveinninn gleymdi að setja í skóinn í Svarfaðardal. Ljóð Ingibjargar Haraldsdóttur Leppalúði verður lesið og Kristján Franklín Magnús leikari les líka sögu H.C. Andersen um Litlu stúlkuna með eldspýturnar. Við heyrum einnig brot af því þegar börn ræddu við Hurðaskelli og Stúf í Opinni línu. Og Cortes feðgar syngja fyrir okkur.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku