Hvað segir nafnið um þig?

Talnaspeki í Opinni línu kl. 11-12. Boðið verður upp á að fá lesið úr fæðingartölum og nafni sínu í s: 568-6090. Benedikt Lafleur talnaspekingur mætir með tól og tæki til að reikna út og lesa úr tölum fyrir hlustendur. Nýtt efni hefur göngu sína kl. hálf 11. Umræða um kynjafræði og klámvæðingu.

Fastur liður á sunnudögum næstu vikurnar verður umræða um kynjafræði og hvernig hlutverk kynjanna birtist í kvikmyndum og sjónvarpi. Hvaða áhrif hefur klámvæðing á líf ungs fólks? Hanna Björg Vilhjálmsdóttir kennari við Borgarholskóla og nemendur hennar í kynjafræði mæta í þáttinn.

Einnig verður rætt um gönguferðir á sunnudaginn, Þór Tuliníus ræðir um Blótgoða og Hjörleifur Hjartarson pistlahöfundur í Svarfaðardal flytur pistil sinn eftir 10 fréttir.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku