Fyrsti sunnudagur í aðventu.

Jólalögin byrjuðu aðeins að hljóma. Fjóla Þorsteinsdóttir tók veðrið á Fáskrúðsfirði og ræddi um vatnsleikfimi. Hendrikka Waage talaði um Japan og nýjustu barnabókina sína. Marentza Poulsen gaf uppskriftir af heimatilbúnu góðgæti sem gaman er að gefa í jólagjöf. Sjá uppskrift hér að neðan.

Pistill Hörleifs Hjartarsonar ,,Einleikur á nostalgíu" fjallaði um orðræðu stjórnmálamanna sem ekkert hefur breyst eftir bankahrunið.

Erla Gerður Sveinsdóttir yfirlæknir ræddi um aðventuna og freistingar sem erfitt er að standast í mat og drykk í desember. Hún ræddi um meðalhófið og gaf ráð. T.d. sagði hún að hætta er á að fitna um 6-7 kíló á ári bara með því að bæta við einum Kaffe latte á dag.

Kristín Tómasdóttir rithöfundur ræddi um vangaveltur og spurningar sem hvíla á stelpum á Íslandi í dag. Hún skrifaði bókina Stelpur frá a-ö.

Opin lína fjallaði um verslun fyrir jólin. Vill fólk versla á Íslandi eða erlendis. Sitt sýnist hverjum um verðlag, tolla og álagningu.

 

Uppskriftir frá Marentzu Poulsen:

 

Lifrarkæfa

1/2 kg svínafita (má vera minna magn)

1/2 kg svínalifur (Fæst oft hakkað í Nóatúni)

2 dl nýmjólk

1 epli

1 laukur

75 g hveiti

30 g ansjósur eða kryddsíld

1 tsk allra handa

1 tsk þurrkað timjan

1 tsk mulið lárviðarlauf

2 egg

salt og pipar eftir smekk


Aðferð: 

Skerið svínafitu, lauk og epli í bita og setjið í matvinnsluvél og blandið gróft.  Þessum jafningi er skellt í pott og hann
bræddur.  Lifur og ansjósur eru þá settar
í matvinnsluvél og blandað vel. 
Lifrarjafningnum er hrært vandlega saman við spikfarsið. 

Hveiti og mjólk eru hrist saman og pískað svo varlega saman við.  

Kryddinu er bætt útí og eggin pískuð saman og hrærð
varlega saman við.  Farsið er sett í
form og bakað í vatnsbaði í 55 til 60 mínútur við 175°C í miðjum ofni. /Sett í álform, sellófan og skreytt með grenigrein og slaufu.


Rauðkál:

1 kg ferskt rauðkál

1 og 1/2 dl edik

3 dl Ribena saft

150 g sykur (Má vera minna magn)

1 dl vatn

2 kanilstangir

sneiðar af hálfri appelsínu

Aðferð: 

Rauðkálið er saxað gróft og sett í pott ásamt öllu hinu.  

Látið malla við vægan hita í 1 klst eða þar til kálið er
mátulega mjúkt. /Sett í krukku og gefið með bros á vör.



 

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku