Sigursteinn og Alfa töltmeistarar
Fyrst birt: 30.06.2012 22:27, Síðast uppfært: 30.06.2012 22:27
Flokkar: Íþróttir

Tvöfaldir landsmótsmeistarar í tölti, Alfa frá Blesastöðum 1A og Sigursteinn Sumarliðason - Mynd: eidfaxi.is
Sigursteinn Sumarliðason og Alfa frá Blesastöðum 1A urðu hlutskörpust í A-úrslitum í tölti á Landsmóti hestamanna í Reykjavík í kvöld en þau unnu greinina einnig í fyrra og eru því Landsmótsmeistarar annað árið í röð.
Sigursteinn og Alfa fengu einkunnina 8,33 fyrir hægt tölt, 8,33 fyrir hraðabreytingar og 9,0 fyrir yfirferð sem gaf þeim heildareinkunn 8,55.
Hinrik Bragason og Smyrill frá Hrísum urðu í öðru sæti með einkunnina 8,44 en þriðju hæstu einkunn 8,28 hlutu Jakob Svavar Sigurðsson og Árborg frá Miðey.
Nánar um úrslitin á síðu Eiðfaxa.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














