Sigurður og Fróði meistarar

Flokkar: Íþróttir
Þórður Þorgeirsson og Sigurbjörn Bárðarson urðu í öðru og þriðja sæti - Mynd: eidfaxi.is


  • Prenta
  • Senda frétt

Sigurður Sigurðarson og Fróði frá Staðartungu urðu í dag Landsmótsmeistarar í A-flokki gæðinga á Landsmóti hestamanna eftir sigur í A-úrslitum.

Sigurður og Fróði fengu 8,82 fyrir tölt, 8,60 fyrir brokk, 9,16 fyrir skeið, 9,00 fyrir vilja og að lokum 8,96 fyrir fegurð í reið sem gaf þeim lokaeinkunnina 8,92.

Þórður Þorgeirsson og Fláki frá Blesastöðum 1A höfnuðu í öðru sæti með heildareinkunn 8,88 en Sigurbjörn Bárðarson og Stakkur frá Halldórsstöðum fengu þriðju hæstu einkunn 8,86.

Nánar um keppni á A-úrslitum á síðu Eiðfaxa.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku