Sigurbjörn með gull og silfur

Flokkar: Íþróttir
Sigurbjörn Bárðarson og Óðinn frá Búðardal eru Íslandsmeistarar í 150 metra skeiði - Mynd: Eiðfaxi.is


  • Prenta
  • Senda frétt

Sigurbjörn Bárðarson og Óðinn frá Búðardal unnu keppni í 150 metra skeiði á Íslandsmótinu í hestaíþróttum á Vindheimamelum í Skagafirði með yfirburðum en þeir fóru vegalengdina á tímanum 14,01 sekúndu og er það langbesti tími ársins.

Elvar Einarsson og Hrappur frá Sauðárkróki höfnuðu í öðru sæti á tímanum 14,76 sekúndum og Eyjólfur Þorsteinsson og Vera frá Þóroddsstöðum urðu þriðju á tímanum 14,79 sekúndur.

Daníel Ingi Smárason og Blængur frá Árbæjarhjáleigu fögnuðu Íslandsmeistaratitilinum í 250 metra skeiði með tímann 22,34 sekúndur sem er besti tími ársins. Sigurbjörn Bárðason og Flosi frá Keldudal urðu í öðru sæti með tímann 23,01 sekúndu en Guðmundur Björgvinsson og Gjálp frá Ytra-Dalsgerði höfnuðu í þriðja sæti á tímanum 23,10 sekúndur.

Nánar má lesa um Íslandsmótið á Eiðfaxa.

 

 

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku