Síðustu lúðurnar unnar á Dalvík

Um áramótin tók gildi bann við lúðuveiði við Ísland og ekki er heldur leyfilegt að hirða lúðu sem meðafla. Það þykir því óvenjulegt að verið sé að vinna lúðu í stórum stíl í húsakynnum Samherja á Dalvík. Ekki er þó um lögbrot að ræða því lúðurnar koma frá lúðueldisstöðinni Fiskey á Hjalteyri.
Stöðin fór á hausinn í haust og keypti dótturfyrirtæki Samherja, Íslandsbleikja, þrotabúið. Þar sem fyrirtækið ætlar sér ekki að halda lúðueldinu áfram er þessa dagana verið að slátra lúðunum 600 sem fylgdu búinu. Þar með endar 25 ára saga Fiskeyjar sem var eina fyrirtæki landsins sem framleiddi lúðuseiði.
Arnar Freyr Jónsson, fyrrverandi framkvændastjóri Fiskeyjar segir að verið sé að vinna um 7- 8 tonn af fiski og meðal þyngdin.
Lúðan þykir feit og bragðgóð en það er ekki bara búkurinn sem er nýttur heldur einnig kinnfiskurinn. Þessi 15 ára gamla lúða hér mun þó ekki lenda í íslenskum munnum því hún eins og aðrar lúður sem verið er að pakka hér verða allar fluttar úr landi og seldar á Bandaríkjamarkað.
Arnar Freyr segir að reynt hafi verið að selja hana hér heima en ekki fengist nægjanlega gott verð fyrir.
Fiskurinn er sendur slægður og hausaður og síðan er kinnfiskurinn tekinn úr hausnum. Eftir stendur restin af hausnum Arnar Frey grunar að talsvert sé nú soðið af lúðusúpu á Dalvík þessa dagana.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku








