Strauss Kahn í haldi á ný

Dominique Strauss Kahn, fyrrverandi yfirmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, var handtekinn þegar hann kom til yfirheyrslu í dag í borginni Lille í Frakklandi. Strauss-Kahn var kallaður fyrir, sem vitni, vegna rannsóknar á starfsemi vændishrings, en fljótlega fékk hann réttarstöðu sakbornings.
Franska lögreglan hefur yfirheyrt fjölda vændiskvenna sem hafi viðurkennt að hafa haft kynmök við Strauss-Kahn. Hann kveðst ekki hafa vitað að konurnar stunduðu vændi. Gunnar Hrafn Jónsson fór yfir það nýjasta í málinu í Síðdegisútvarpinu.
Á vef Business Week segir að Strauss-Kahn gæti átt yfir höfði sér ákæru fyrir að útvega vændiskonur og hagnast af fjárdrætti. Málið tengist annarri og viðameiri rannsókn þar sem átta karlmenn hafa verið handteknir fyrir að skipuleggja vændishring og misnota fé í eigu fyrirtækja og stofnana til að greiða fyrir kynlíf. Þrír hinna grunuðu í því máli eru sagðir nánir Strauss-Kahn. Lögmaður Strauss-Kahn segir að skjólstæðingi sínum hafi ekki verið kunnugt um að konurnar væru vændiskonur.
Strauss-Kahn varð að láta af embætti forstjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eftir að þerna á hóteli í New York sakaði hann um að hafa beitt sig grófu kynferðisofbeldi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku








