Skrýtin veröld Gunnars Hrafns

Gunnar fór víða í Skrítinni veröld í Síðdegisútvarpinu. Hann fræddi okkur um vinsældir Valentínusardagsins í Úsbekistan sem ráðamönnum líst illa á og sagði okkur frá tveimur köttum, sem lögreglan í Þýskalandi hefur veitt nafnleynd til að vernda þá gegn eigendunum, ný-nasískum hryðjuverkamönnum.

Svo eru það líka þýsku hjónin, sem leyfðu sjónvarpsmönnum að fylgjast með sér á kynlífsklúbb gegn því að andlit þeirra yrðu blörruð þegar heimildamyndin yrði send út í sjónvarpinu. Það virkaði ekki alveg sem skyldi. Og svo kom það líka í ljós í nýrri rannsókn frá Þýskalandi að listamenn eru fátækasta en jafnframt hamingjusamasta fólkið á vinnumarkaðinum.

Gunnar Hrafn fjallaði líka um þann algenga misskilning að manni verði alls hlýtt af því að drekka áfengi í miklum kulda. Þvert á móti gerir það illt verra.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku