Keppni og kynlíf á ÓL
Fyrst birt: 14.08.2012 19:31, Síðast uppfært: 15.08.2012 14:16
Flokkar: Ólympíuleikar, Síðdegisútvarpið

Á Ólympíuleikum svitnuðu menn ekki bara í keppni heldur við kynlíf líka. Ekki að undra þegar ungt og fjörugt fólk kemur saman svo að þúsundum skiptir, bæði keppendur og sjálfboðaliðar.
Og Durex er í engum vafa: 150 þúsund smokkum var dreift á leikunum í Lundúnum. En hvað um þá kenningu að kynlíf og keppnisíþróttir fari ekki saman? Kristinn R. Ólafsson kynnti sér málið og gaf hlustendum Síðdegisútvarpsins skýrslu sína.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is








