Gengisdómur: Marinó G. Njálsson

Niðurstaða Hæstaréttar í gengislánamálinu í gær þýðir að fjármálafyrirtækin, með því að fara eftir lögunum frá í desember 2010, hafi rukkað þá sem tóku gengistryggð lán um samtals 20-30 milljörðum króna of mikið.
Lögin voru sett í kjölfar gengislánadóms Hæstaréttar hins fyrri þar sem gengislánin voru sögð ólögmæt. Samkvæmt lögunum var ákveðið að lægstu Seðlabankavextir kæmu í stað gengistryggingarinnar og vaxtanna í gengistryggðu lánasamningunum. Þetta þýddi umtalsverða lækkun þessarra lána, sem talin er hafa numið tæpum150 milljörðum samtals fyrir heimilin.
Nú ákvað Hæstiréttur í gær að ákvörðunin um lægstu seðlabankavexti á þessa samninga gæti ekki gilt fyrir þann tíma sem fólk var að borga af lánunum fyrir tilkomu laganna í desember 2010. Og enn koma gengislánin því til með að lækka. Marinó G. Njálsson var á línunni í Síðdegisútvarpinu og ræddi þetta.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku








