Facebook færsla stoppar þingið



  • Prenta
  • Senda frétt

Facebook færsla þingmanns olli uppnámi í dag á Alþingi og var þar rædd þar sérstaklega. Gera varð hlé á þingfundi vegna málsins.

Upphaf málsins er að Vigdís Hauksdóttir sat nefndarfund í morgun í stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og skrifaði um leið á Facebook sína það sem hún taldi eiga sér stað á fundinum.

Formaður nefndarinnar, Valgerður Bjarnadóttir sleit fundi í hasti og gagnrýnd Vigdísi síðan harðlega í umræðunni um störf þingsins. Við heyrðum brot af úr sal þingsins í Síðdegisútvarpinu. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti þingsins, sagði að Vigdís gæti ekki komið í ræðustól til að bera af sér sakir fyrir brot á þingsköpum. Vigdís neitaði því að hafa brotið þingsköp og sagði að sér hefði verið sýnt ofbeldi í meðferð málsins.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku