Einelti fyrir austan

Einelti á vinnustöðum er algengara en við höldum.
Einelti getur gert lífið óbærilegt fyrir þann sem fyrir því verður og haft margvísleg neikvæð áhrif á líðan starfsmanna, starfsánægju, metnað, fjarvistir og félagslegt starfsumhverfi. Það getur því valdið vinnuveitanda miklu fjárhagslegu tjóni. Við heyrðum sögu einstaklings í Síðdegisútvarpinu í dag sem segist hafa þurft að þola niðurlægjandi og yfirgengilega framkomu gagnvart sér á vinnustað í tæp þrjú ár. Steinunn Steinþórsdóttir, móðir Huldu Valdísar Önundardóttur, þolanda eineltis á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupsstað, sagði okkur sögu dóttur sinnar og stirðum samskiptum hennar við stofnunina. Einar Rafn Haraldsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands, var á línunni. Einar Rafn telur HSA hafa gert allt í sínu valdi til að koma til móts við Huldu Valdísi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












