Sveinn Helgason í Bandaríkjunum

Madonna á Super Bowl 2012

Sveinn Helgason var á sínum stað í Síðdegisútvarpinu og flutti hlustendum nýjustu tíðindi frá Bandaríkjunum.

Sveinn sagði til dæmis að staða Obama Bandaríkjafoseta sé að styrkjast og hefur hann nokkuð forskot á Mitt Romney sem er líklegur til að hreppa útnefningu Repúblíkaflokksins sem forsetaefni flokksins. Ný skoðanakönnun leiðir í ljós að yrði kosið nú fengi Obama 52% atkvæða en Romney 45%. Hann sagði hlustendum líka frá því að bandarískir ráðamenn og embættismenn verða sífellt harðorðari í yfirlýsingum gagnvart sýrlenskum stjórnvöldum sem halda áfram stórskotaárásum á eigin þegna. Þó sé ólíklegt að bandarísk stjórnvöld geri meira en að halda uppi pólítískum þrýstingi og beita refsiaðgerðum - að sinni að minnsta kosti.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku