Síðasta mót Þormóðar fyrir ÓL

Flokkar: Íþróttir
Þormóður Jónsson keppir um helgina á síðasta móti sínu fyrir Ólympíuleikana í London


  • Prenta
  • Senda frétt

Júdókappinn Þormóður Jónsson keppir í opnum flokki á júdómóti í Prag á sunnudag og er það síðasta mót hans fyrir Ólympíuleikana sem hefjast í London í júlí.

Þormóður hefur undanfarið dvalið í OCT æfingabúðum í Minsk í Hvíta-Rússlandi sem haldnar eru á vegum Júdósambands Evrópu. Eftir mótið í Prag fer hann í æfingabúðir í Nymburk í Tékklandi og verður þar út næstu viku en að þeim loknum mun lokaundirbúningur hans fyrir Ólympíuleikana að mestu fara fram á Íslandi.

Sveinbjörn Iura verður einnig á meðal keppenda á mótinu í Prag en hann keppir í -81 kg flokki. Hann fer einnig með Þormóði í æfingabúðirnar í Tékklandi að móti loknu.

 

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku