Sex ráðherrar hafa sagt af sér

úkas Papademos, forsætisráðherra Grikklands.
Sex ráðherrar í grísku ríkisstjórninni hafa sagt af sér embætti til að mótmæla aðhaldsaðgerðum sem stjórnin samþykkti í gærkvöld að kröfu Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Tillögurnar verða lagðar fyrir gríska þingið á morgun.
Samkomulagið sem náðist í gærkvöld er forsenda þess að ESB og AGS afgreiði neyðarlán upp á 130 milljarða evra. Lánið er dýru verði keypt, aðhaldsaðgerðirnar sem ráðist verður í þýða að fimmtán þúsund opinberir starfsmenn missa vinnuna, lágmarkslaun verða lækkuð um fimmtung og vinnumálalöggjöfinni breytt. Ekki gekk þrautalaust að ná samkomulaginu því sex ráðherrar sögðu sér embætti til að mótmæla því.
Atkvæði verða greidd um tillögurnar í gríska þinginu á morgun. Þótt einhverjir stjórnarþingmenn kjósi gegn málinu er samt sem áður búist við að ríkisstjórnin hafi tryggan meirihluta á bak við sig. Mikil ólga er í landinu vegna málsins, tveggja sólarhringa allsherjarverkfall hófst í gær og ítrekað hefur komið til átaka á milli lögreglu og mótmælenda í helstu borgum landsins. Lúkas Papademos, forsætisráðherra Grikklands, sagði í þjóðarávarpi í gærkvöld að ef áætlunin yrði ekki samþykkt og greiðslufall yrði hjá hinu opinbera yrði efnahagslegt öngþveiti í landinu, Söguleg ábyrgð hvíldi því á herðum stjórnmálamanna.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Mótmæli í Grikklandi
Þrýsta enn frekar á Grikki






