Sex milljarðar í vexti



  • Prenta
  • Senda frétt

Íslenska ríkið þarf að greiða rúma sex milljarða króna í vaxtakostnað vegna SpKef. Heildarkostnaður við málið mun því nema um 25 milljörðum króna. Fyrrverandi fjármálaráðherra segir þetta miklu hærri upphæð en hann hafði vonast eftir.

Sérstök úrskurðarnefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið þurfi að greiða rúmlega 19 milljarða króna með SpKef. Ríkið gefur út skuldabréf fyrir upphæðinni, og miðast vextirnir við innlánsvexti Seðlabankans sem nú eru 4,5% og miðast við vaxtastig Seðlabankans.

Fjármálaráðuneytið gerir því ráð fyrir að vaxtakostnaður vegna málsins verði tæpar 900 milljónir króna á ári. Vextirnir verða reiknaðir um eitt ár aftur í tímann, og fram á mitt ár 2018. Því verður vaxtatímabilið um sjö ár, og ef fram heldur sem horfir má því gera ráð fyrir að vaxtakostnaður ríkisins vegna SpKef verði rúmir sex milljarður króna, og heildarkostnaður vegna málsins því um 25 milljarðar króna. Steingrímur J. Sigfússon var fjármálaráðherra þegar SpKef var stofnaður. 
„Þetta er að sjálfsögðu miklu hærri upphæð en maður vonaði að nokkurn tímann yrði. En þetta er fórnarkostnaðurinn við að tryggja allar innistæður í þessari stóru fjármálastofnun sem á endanum fór þessa leið og reyndist svona hryllilega á sig komin,“ segir Steingrímur.  

Aðspurður um það álit stjórnarandstöðunnar að málið sé allt klúður segir Steingrímur það rétt að bankahrunið á Íslandi sé ofsalegt klúður.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði í hádegisfréttum að Steingrímur hefði í tíð sinni sem fjármálaráðherra beitt úreltum lögum án heimildar þegar hann stofnaði SpKef. Endurskoða hefði átt lögin áður en þeim var beitt. Það segir Steingrímur að sé rangt. Farið hafi verið vandlega yfir þetta lögfræðilega. Neyðarlögum hafi verið beitt og öðrum heimildum og þetta hafi allt staðist skoðun lögfræðinga. 

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku