Setið um Tom Cruise á Íslandi



  • Prenta
  • Senda frétt

Ísland er í kastljósi erlendu slúðurpressunnar um þessar mundir og svo virðist sem ljósmyndarar keppist nú um að finna bandaríska leikarann Tom Cruise hér á landi. Breska blaðið Daily Mail birti á vefsíðu sinni myndir sem eru sagðar þær fyrstu af leikaranum síðan fréttist af skilnaði hans.

Myndirnar er hægt að skoða hér og þá birti New York Daily News einnig myndir af leikaranum en þær sýna leikarann fara á loft í þyrlu Norðurflugs frá Reykjavíkurflugvelli í dag. Það var Ingólfur Júlíusson, ljósmyndari, sem tók þær fyrir Reuters-fréttaveituna. Talsvert hefur verið fjallað um skilnað Tom Cruise og Katie Holmes í erlendum fjölmiðlum og hefur nafn Íslands borið þar helst á góma en leikarinn er staddur hér á landi við tökur á kvikmyndinni Oblivion.

Fréttastofa hafði samband við Claire Redskin, upplýsingafulltrúa myndarinnar hér á landi, og hún sagði tökur á myndinni ganga vel og þeim yrði framhaldið í dag. Tökurnar væru á áætlun.

ABC-fréttastofan birti myndir sem íslenski ljósmyndarinn Júlíus Sigurjónsson tók af Cruise og Holmes þegar þau röltu um Þingholtin fyrir rúmri viku en þær eru sagðar síðustu myndirnar af hjónunum saman.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku