Serbar og Danir í úrslit

Serbar og Danir leika til úrslita á Evrópumótinu í handknattleik í Serbíu á sunnudag. Serbar unnu Króata í seinni leik undanúrslitanna í kvöld 26 - 22. Danir sigruðu Spánverja í fyrri undanúrslitaleiknum 25-24.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka