Sendiráðum Túnis og Líbíu lokað

Átök í Homs. Mynd úr safni.

Sýrlensk stjórnvöld hafa ákveðið að loka sendiráðum Túnis og Líbíu í Damaskus, eftir að stjórnvöld þessara landa ráku sýrlenska sendiráðsstarfsmenn heim fyrr í vikunni.

Ekkert lát er á átökum uppreisnarmanna og herliðs stjórnvalda í Sýrlandi. Sjö eru sagðir hafa fallið í borginni Homs í dag, þar sem hart hefur verið barist að undanförnu. Átökin hafa breiðst út yfir landamærin til Líbanons. Tveir féllu og átta særðust í átökum í norðurhluta landsins í dag þar sem stuðningsmenn Assads börðust við andstæðinga hans. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku