Segir sig af Y-lista
Fyrst birt: 09.02.2012 18:13, Síðast uppfært: 09.02.2012 18:52

Í yfirlýsingu frá Y-lista Kópavogsbúa í dag, segir að listinn hafi ákveðið að stíga nauðsynlegt skref og gefa eftir kröfu um ópólitískan bæjarstjóra. Það hafi verið gert, svo hægt væri að mynda starfhæfan meirihluta í bænum.
En ekki eru allir sáttir við þátttöku Y-manna í meirihlutanum. Ásdís Ólafsdóttir sem kallar sig móður Y- listans og skipaði heiðurssætið í síðustu kosningum, biður Kópavogsbúa afsökunar í dag á því að listinn hafi tekið U-beygju frá grunngildum sínum. Hún muni segja sig af listanum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Nýr bæjarstjóri vill lækka skatta






