Segir Salvöru hafa efasemdir

Mynd úr safni.

Salvör Nordal, formaður stjórnlagaráðs, upplýsti Alþingi og þingnefnd um það í gær að hún hefði efasemdir um það hvort hún gæti komið að starfi ráðsins á ný. Það gerði hún áður en atkvæðagreiðsla um tillögur ráðsins um breytingar á stjórnarskrá fór fram í gær.

Þetta kom fram í máli Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, þegar hann spurði Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra um áherslumál ríkisstjórnarinnar nú um stundir en Alþingi samþykkti í gær að kalla stjórnlagaráð saman til fjögurra daga fundar í mars.

Forsætisráðherra brást ekki við þessum fullyrðingum Bjarna. Hins vegar kom fram í máli hennar að rammaáætlun yrði lögð fyrir ríkisstjórn á allra næstu dögum og vonandi samþykkt á vordögum. Nú væri unnið af kappi við frumvarp um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu, sú vinna myndi eitthvað dragast en væri forgangsmál sem vonandi yrði afgreitt á vorþingi.

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Stjórnmál

Tilkynna um bilaða upptöku