Prenta frétt

Senda frétt Horfa á frétt

Segir fullyrðingar SI vandræðalegar

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, segir fullyrðingar Helga Magnússonar, formanns Samtaka iðnaðarins, um að Vinstri græn séu á móti hagvexti, vandræðalegar. Það sé raunalegt að Samtök iðnaðarins og Samtök atvinnulífsins einblíni á virkjanir og stóriðju. Svandís segir hún segir umæli formannsins eiginlega ekki svaraverð en vegna þess að hann stendur fyrir stór hagsmunasamtök þykir henni rétt að svara ummælunum.

 Hún segir VG vinna hörðum höndum að endurreisninni til að mynda með því að efla nýsköpun. Hún tekur undir með Helga Magnússyni um að þörf sé á innspýtingu í hagkerfið. Það þurfi að gera á forsendum umhverfisins og samfélagsins. Henni þykir raunalegt að samtökin skuli tala eins og svarið sé eitt og einfalt. Spurningin sé flókin og svörin séu það líka. Hún hvetur Samtök iðnaðarins og Samtök atvinnulífsins til að fara í gegnum sjálfskoðun hugmyndafræði sinni.


 
        

frettir@ruv.is


Senda á Facebook

29. júlí 2010

Streymiþjónusta